Ásta Indía Valdimarsdóttir
fimmtudagur, janúar 01, 2009
  hæ hæ ég ætla núna aðeins að segja aðeins frá mér eins og ég er núna.

Uppáhalds liturinn minn er svartur.

Besta vinkona mín heitir Daria Lind.

ÉG er að að æfa ballett og á þverflautu.

kveðja

Ásta Indía.








 
miðvikudagur, desember 31, 2008
  hæ hæ ég gleimdi alveg ég er flutt núna í Bólstaðarhlíð 64.

Og ég er í háteigskóla og 3.RH.

Ég læt inn myndir af mér og íbúðinni minni og mömmu eins fljótt og ég get.

Ég skal líka setja mindir af íbúðinni okkar pabba og irene.

kveðja

Ásta Indía
 
  hæ hæ nú er ég tekin við af mömmu því nú er ég orðin 8 ára og get séð um þetta sjálf.

En ég ætla nú bara að óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


kveðja

Ásta Indía 
miðvikudagur, júní 16, 2004
  Hæ hæ
Ég veit að ég er nú nánast hætt þessu blogg rugli, en ég stóðst ekki mátið. Signý og Sigurgeir eignuðust litla dóttur í morgun og Salný Kaja varð stóra systir.
Gaman gaman, við hlökkum svo til að sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn. Ég set inn mynd við fyrsta tækifæri.

Þá vil ég líka óska henni Salnýju Kaja stóru systur til hamingju með tveggja ára afmælið. Hún átti afmæli 11. júní, á föstudaginn og fórum við í afmælispartí til hennar á laugardaginn. Það vildi nú svo skemmtilega til að pabbinn hennar var að útskrifast þann dag sem kerfisfræðingur. Það er mikið um að vera hjá þessari fjölskyldu þessa dagana og óskum við þeim hér með til hamingju með allt.

Fjóla.
 
þriðjudagur, maí 25, 2004
  Já, ég var að panta flug. Ég og Ásta Indía komum á þriðjudaginn eftir viku heim til Íslands.
Sjáumst eftir viku!
Fjóla.
 
laugardagur, maí 15, 2004
  Jæja, er ekki kominn tími til að ég láti heyra aðeins í mér???

Allt hefur gengið sinn vanagang, svona nokkurn veginn. Ásta Indía var í fríi í 2 vikur og í lok frísins þá kom Sara í heimsókn til okkar. Sama dag og Sara kom þá fór Valdi til Parísar að spila. Hann kom tilbaka í tæka tíð til að fylgja systur sinni á flugvöllinn. Alla vegna það var rosa stuð að hafa Söru hjá okkur. Við vorum rosa mikið í bænum að versla með Söru, fórum út að borða og höfðum það rosalega gott. Ásta Indía gat leikið við Söru rosa mikið og svoleiðis. Alla vegna rosalegt stuð.

Um daginn var svo menningarhátíð í Oosterpark. Fólk frá Grikklandi, Marokkó, Tyrklandi, Brasilíu, Surinam, Eþíópíu og fleiri stöðum mættu í garðinn, seldu mat frá sínu heimalandi og voru með skemmtiatriði. Það var mikið um tónlist og dans og sýningar. Ásta Indía breyttist í tígrisdýr og fékk að fara í flotta hringekju.

Þegar við fórum í bæinn með Söru einu sinni þá hittum við líka vinkonu Ástu Indíu hana Gígju. Hún var í bænum ásamt pabba sínum og vinum mínum, sem voru í heimsókn hjá þeim. Það var rosa gaman að hitta hana Gígju, þær eru saman svo góðir bullarar. Þær gátu horft á brúðuleikhús á Dam torginu og hlupu svo um meðan við drukkum kaffi.

Við stefnum á að koma heim eftir rúman mánuð og ég og Ásta Indía förum líklegast ekki aftur út. Heldur erum við að hugsa um að búa með Halla frænda í nýju íbúð ömmu Ástu Kristínar og afa Sverris, sem þau eiga eftir að kaupa. Ásta Indía ætlar að reyna að fá aftur pláss á Undralandi, gamla leikskólanum sínum og ég ætla að reyna að fá að kenna einhvers staðar.

Ég set inn fleiri myndir núna. Myndir af Söru og Gígju og nokkrar montmyndir fyrir mig af eldhúsborðinu okkar sem ég er svo stolt af. Ég málaði það sko alveg sjálf.

Ekki meira í bili.
Bless, bless
Fjóla Dögg. 
laugardagur, maí 01, 2004
  Hæ hæ.
Héðan er allt gott að frétta. Sól og sumar á hverjum degi í kringum 20 stiga hiti. Mmmm... á slíkum dögum þá langar manni ekkert til Íslands, þar sem slíkir dagar koma kannski einu sinni á ári. Í gær var drottningardagurinn haldinn hátíðlegur og vöknuðu allir sem ætluðu að vera úti að selja fyrir kl. 6 í morgun. Ásta Indía fékk skartgripaskrínið sitt á hausinn korter yfir 6 um morguninn og þá kíktum við aðeins út um gluggann og sáum að fólkið var byrjað að koma sér fyrir á gangstéttunum. við fórum svo ekkert á fætur fyrr en kl. 9 og þá var allt komið á fullt hérna. Við gengum aðeins um hverfið okkar þar sem stelpur máluðu fiðrildi framan í Ástu Indíu, en svo ákváðum við að kíkja í bæinn. Þar var allt troðið af fólki og á mörkunum að hægt væri að ganga um. Þar var aðallega hægt að borða, drekka og hlusta á tónlist, en í hverfunum er greinilega meiri markaðsstemning. Við komum aðeins við í Vondelpark, en sá garður er tekinn frá fyrir krakka, þar sem þeir sýna listir sínar og selja dótið sitt. Garðurinn var troðfullur enda helsti áningarstaður Amsterdambúa og svona sólríkum dögum, hvað þá á hátíðardegi sem þessum. Þetta er sko 17. júní Hollendinga og koma margir utan af landi í stórborgina, allir skreyttu appelsínugulu, sem er drottningarliturinn. Nú það eru nú fleiri en drottningarmóðirin sem eiga afmæli þennan dag, en drottningarmóðirin okkar, langamma Fjóla átti líka afmæli í gær, 92 ára.

Það eru svo mörg afmæli í vikunni, í dag á amma Ásta Kristín afmæli, 52 ára, á mánudaginn á Signý frænka afmæli, 25 ára og svo á föstudaginn þá á langamma Guðný afmæli, 75 ára. Hún og Signý ættu bara að halda saman uppá sameiginlegt 100 ára afmæli. Elfa frænka varð líka 40 ára á miðvikudaginn. Vá hvað hefði verið mikið að gera hjá okkur ef við hefðum verið á Íslandi. Við óskum afmælisbörnum vikunnar til hamingju með afmælin.

Moskítóflugurnar eru svo aðeins farnar að láta sjá sig, en Ásta Indía fékk eitt og svo fengum við okkur flugnanet yfir rúmin og þá hurfu flugurnar, en þær eru greinilega komnar aftur þar sem ég er komin með eitt á fingur, ætli ég hafi ekki stungið hendinni út úr netinu, þar sem þær vilja helst bíta mig nokkrum sinnum.

Það eru komnar fleiri myndir inní vormöppuna frá gærdeginum og aðeins í dag. Kíkið á þær.
Hafið það gott og góða skemmtun í afmælum.
Fjóla.
 
mánudagur, apríl 26, 2004
  Hæ hæ,
sumardagurinn fyrsti hér í Hollandi var sumarlegur og fínn. Hér er náttúrulega ekki haldið uppá þennan dag en eftir skóla þá fórum við Ásta Indía saman í dótabúð því við vorum búin að lofa henni sumargjöf í tilefni dagsins og það átti að vera dúkkustóll á hjólið hennar. Við fundum stól til að setja á stýrið og með honum fylgdi meira að segja hjálmur fyrir dúkkuna. Nú okkur var ekki til setunnar boðið heldur drifum okkur út að hjóla. Ásta Indía var ansi stressuð því síðast þegar hún fór á hjólið þá prófaði Valdi að taka hjálpardekkin af og hún datt náttúrulega. Hann setti hjálpardekkin á aftur, en skekkti þau og eftir það hefur hún ekki þorað á hjólið vegna hræðslu um að detta. Alla vegna þá var mjög spennandi að fara með dúkkuna út að hjóla, en þetta var mjög stressandi og átti ég að halda í hjólið allan tímann. Til að byrja með þá fórum við niður götu þar sem ég hélt í hjól með hjálpardekkjum, með stressaða stelpu sem æpti í hvert sinn sem hjólið datt á annað hjálpardekkið. Um stund þá ætlaði hún bara af hjólinu og labba með það bara, en ég tók það ekki í mál og eftir smá hótanir þá var hún komin á hjólið hálf vælandi. Svo var hjólað smám saman þá tókst mér að losa haldið um hjólið og eftir smá stund þá var hún farin að hjóla eins og ekkert væri. Hún gat hjólað hratt og hjólaði hringi í kringum ljósastaura og taldi kóngulóarvefina á brúnum sem við fórum yfir. Rosa dugleg. Núna förum við nánast daglega út að hjóla til að æfa hana.

Á föstudaginn kom hún svo með mæðradagsgjöf úr skólanum. Þetta var lítill bleikur pakki með hjartamerkimiða sem á stóð til mömmu frá Ástu Indíu, á hollensku þó. og inní var askja sem hún hefði skreytt og ofaní öskjunni var lítil Nivea kremdós og í botninum stendur mamma, ég elska þig. Rosalega sætt.

Nú, í dag þá hófst 2 vikna frí í skólanum hennar Ástu Indíu og í næstu viku verður líka frí í Valda skóla. Næsta föstudag verður Drottningardagur hér í Hollandi, en Juliana drottningarmóðirin hérna átti þá afmæli, en hún dó í vetur. Drottningarmóðirin í minni fjölskyldu á líka afmæli þann dag, hún langamma Fjóla og amma Ásta Kristín á afmæli daginn eftir. Mikið um að vera. Helgina þar á eftir þá verður Valdi pabbi í París og amma Ásta Kristín og afi Sverrir í Brussel. Þá er bara stóra spurningin eigum við Ásta Indía að fara til Parísar eða Brussel eða eigum við bara að tjilla í Amsterdam???

Annars voru amman og afinn í Hæðarseli að selja húsið sitt í gærkvöldi. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

Bless í bili,
Fjóla.
 
Hæ hæ. Hér erum við að hugsa um að segja fréttir af okkur, en aðallega af Ástu Indíu, svo vinir okkar og fjölskylda á Íslandi og víðar geti fylgst með okkur í Hollandi.

ARCHIVES
08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 01/01/2009 - 02/01/2009 /


Powered by Blogger

Free Guestbook from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Free Photo Center from
Bravenet
powered by Powered by Bravenet bravenet.com

Sendið Fjólu póst
Sendið Valda póst
Svona er veðrið í Amsterdam:
The WeatherPixie

Weblog Commenting by HaloScan.com